Vel heppnað réttindanámskeið fyrir verðandi heilbrigðisfulltrúa
20.10.2016
20. október 2016, frétt af heimasíðu Umhverfisstofnunar:
Vel heppnað réttindanámskeið fyrir verðandi heilbrigðisfulltrúa
Umhverfisstofnun í samstarfi við Matvælastofnun hélt réttindanámskeið fyrir verðandi heilbrigðisfulltrúa dagana 3. til 7. október 2016. Fyrstu þrjá dagana var farið yfir þætti er varða lagaumhverfi heilbrigðiseftirlits, hollustuhætti, eftirlit með efnavörum og mengunarvarnir í húsnæði Umhverfisstofnunar í Reykjavík. Seinni tvo daga námskeiðsins var farið yfir þætti er varða matvælalöggjöf og matvælaeftirlit og var kennt í húsnæði Matvælastofnunar á Selfossi.
Alls voru fluttir 37 fyrirlestrar um efni sem tengjast starfi heilbrigðisfulltrúa. Námskeiðið sóttu alls 10 verðandi heilbrigðisfulltrúar auk þess sem fyrirlestrar voru sendir út til að gera starfandi heilbrigðisfulltrúum og starfsmönnum Umhverfisstofnunar og Matvælastofnunar kleift að nýta þá til endurmenntunar.
Leyfi umhverfisráðherra þarf til að hafa rétt til þess að starfa sem heilbrigðisfulltrúi hér á landi og kalla sig heilbrigðisfulltrúa. Eitt af skilyrðum þess er að viðkomandi að hafi sótt námskeið um stjórnsýslu, lög og reglugerðir sem heilbrigðisfulltrúum ber að sjá um að sé framfylgt.