Starfsleyfistillaga fyrir fiskeldi Haukamýri, Húsavík
Starfsleyfistillaga fyrir fiskeldi Haukamýri
Til að taka á frárennslismálum á staðnum lagði rekstraraðili fram áætlun sem Umhverfisstofnun samþykkir með smávægilegum breytingum að leggja fram í starfsleyfistillögunni.
Ekki er áformað að boða til almenns kynningarfundar (borgarafundar) um tillöguna á auglýsingatíma nema eftir því verði sérstaklega óskað. Í meðfylgjandi greinargerð er ítarlega gerð grein fyrir málsmeðferð Umhverfisstofnunar við vinnslu málsins.
Tillagan mun liggja frammi ásamt umsóknargögnum á skrifstofu Norðurþings, Húsavík, á tímabilinu 3. apríl til 29. maí 2013. Tillöguna má nálgast á heimasíðu Umhverfisstofnunar: WWW.ust.is
Frestur til að gera athugasemdir við tillöguna er til 29. maí 2013.