Námskeið um merkingu matvæla
Matvælastofnun heldur námskeið um merkingu matvæla Matvælastofnun mun halda námskeið fyrir matvælaframleiðendur um merkingu matvæla á næstu vikum. Á
námskeiðunum verður fjallað almennt um hvernig merkja á matvæli. Áhersla verður lögð á innihaldslýsingar, magnmerkingar,
upprunamerkingar og auðkennismerki. Einnig verður fjallað um næringargildismerkingar og næringar- og heilsufullyrðingar, með sérstakri áherslu á
heilsufullyrðingar.
Í eftirlitsverkefni Matvælastofnunar og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga frá árinu 2011 um
innihaldslýsingar matvæla og uppskriftir þeirra kom í ljós að í 16% tilfella komu ekki öll innihaldsefni uppskriftar fram í
innihaldslýsingu á umbúðum. Þá voru nýlega birtar niðurstöður norræns eftirlitsverkefnis um merkingar matvæla í Noregi,
Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi á tímabilinu 2010 til 2012. Þær sýna að fimmta hver vara var ekki rétt merkt og að
innihaldið passaði ekki við innihaldslýsingu í 9% tilfella. Jafnframt sýnir ný úttekt Matvælastofnunar á 16 matvörum í
verslunum að engin þeirra uppfyllti allar kröfur um merkingar. Matvælafyrirtæki bera ábyrgð á
eigin framleiðslu og upplýsingagjöf til neytenda. Rétt merking matvæla er mikið hagsmunamál fyrir neytendur og geta rangar merkingar m.a. verið varasamar
þeim sem eru með matarofnæmi eða óþol. Nálgast má glærur og upptökur af fræðslufundum MAST um merkingar matvæla, rekjanleika
og nýju matvælalöggjöfinu á vef Matvælastofnunar, www.mast.is, undir Útgáfa - Fræðslufundir. Námskeiðin 3 verða haldin á eftirfarandi stöðum og tímum:
- Miðvikudaginn 13. mars kl. 14-17 í fundarsal Samtaka atvinnulífsins á efstu hæð, Borgartúni 35, 105 Reykjavík
- Þriðjudaginn 19. mars kl. 13-16 í fundarsal Inn- og útflutningsskrifstofu Matvælastofnunar, Stórhöfða 23, 110 Reykjavík
- Miðvikudaginn 20. mars kl. 13-16 í Alþýðuhúsinu (4.h.), Skipagötu 14 á Akureyri
Námskeiðið er ætlað starfsfólki matvælafyrirtækja og er ókeypis. Skráning
fer fram á netfanginu mast@mast.is. Vinsamlega takið fram nafn, fyrirtæki og hvað af
námskeiðunum þremur þið ætlið að sækja: 13. mars, 19. mars eða 20. mars á Akureyri.
Með kveðju, / Best regards, Hjalti Andrason Fræðslustjóri / Head of Information and Communication Fræðslu- og upplýsingamál / Information and Communication
______________________________
Austurvegi 64 800 Selfoss
Sími/tel: (+354) 530 4800 Fax : (+354) 530 4801 www.mast.is